mánudagur, júlí 10, 2006

Endalok....The End

Bloggið er dautt....This blog is dead.
Ég þakka samfylgdina í gegnum árin.
Þeir sem vilja fylgjast með mér núna, geta því hringt í mig eða emailað mig á "gamla" mátann! ;)

fimmtudagur, júní 22, 2006

Hitt og þetta

This blog is slowly dying...
Hér eru nokkrar myndir frá því ég gerðist svo hugrökk að labba Fimmvörðuhálsinn 10 júní síðastliðinn ásamt góðu fólki. 23 km yfir fjöll og heiðar, enginn slóði til að fylgja og sem betur fer vorum við með 4 leiðsögumenn með gps tæki og kort. :)
Þetta var virkilega fallegt landslag sem við löppuðum í gegn en mikið rosalega var þetta erfitt fyrir svona manneskju eins og mig sem er í engu formi. Er ég því mjög stolt af mér að hafa þraukað þetta. :)





Annað að frétta er að ég ætla að skella mér til Lúx á morgunn í smá frí og hreinsa hugann.

Njótið góða veðursins! :)

fimmtudagur, júní 01, 2006

Sporðdrekinn ég

Sporðdrekinn er tilfinningaríkur og frekar varkár. Að öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er kjarnyrtur og hreinskilinn og lítið fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur og tekur tilfinningar og líðan annarra inná sig. Hann heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Hann vill kafa djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar hann er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að ræða hvað sem er. Sporðdrekinn getur því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.

þriðjudagur, maí 23, 2006

Wig Wam!!

Sumarhátíð Spron var seinasta föstudag og var Eurovision auðvitað þemað. ;)
Það var byrjað á fordrykk hér í vinnunni klukkan fimm og svo var haldið á Kjarvalsstaði þar sem Argentína grillaði oní okkur og hljómsveitin Ísold spilaði fyrir dansi. Það var dúndurstuð og lenti deildin mín í 2.sæti í búningakeppninni. Enda voru búningarnir okkar bara snilld. Vorum dressuð upp sem snillingarnir í Wig Wam sem slóu svo eftirminnilega í gegn í Eurovision í fyrra.
Eru við ekki flott?! hehe




Þessir voru Silvía Nótt. ;)

mánudagur, maí 08, 2006

Geggjuð sumarbústaðar helgi í frábæru veðri

Flottar saman með riiiisa Mojitoin sem Íris bjó til. ;)
Og í pottinum..... ;)
Svona var ástandið undir lokinn. Sjá má vel í afleiðingar laseraðgerðinnar í öðru auganu. Plús svona æðislega ómáluð eins og læknirinn skipaði fyrir. ;) Oh well....


Skelltum okkur 6 skvísur saman í sumarbústað um helgina. Truflað veður, góður félagsskapur, mikið hlegið og mikið drukkið. Held ég hafi aldrei enst svona lengi í heita potti áður! :)
Takk fyrir mig stelpur! :)
Myndirnar má finna hér! (þ.a.s þær myndir sem við ákváðum að opinbera..) :) hehe

Og fleira skemmtilegt gerðist þessa helgi, en Gunna systir Halla átti litla stelpu á laugardeginum. Ekki ónýt kennitala 06.05.06 :) Til hamingju Gunna og Hreiðar!

fimmtudagur, maí 04, 2006

I can see, I can see!!!!!!!!!!


Í gær, 3 maí tók ég af skarið og fór í laseraðgerð á augunum. Var með -4.75 og -4,25 plús sjónskekkju, sem þýðir að án gleraugna eða linsa var ég bjargarlaus. En í dag 4 maí er ég með 100% sjón á vinstra auga og 120% sjón á því hægra!!! Og sjónin mun víst bara fara batnandi ef ég passa mig vel næstu daga.
Sem þýðir engin máling nálægt augunum, ekkert vatn í augun, afslappelsi og engin áreynsla.
En þvílíkur munur sem þetta á eftir að vera. Ekkert vesen með linsur og linsuvökva, eða kostnað í kringum það lengur. Og ef ég verð heppin mun sjónin haldast svona allavegana næstu 20 árin. :)
Ég er svoooo ánægð! :)

mánudagur, apríl 10, 2006

Púddan mín

Búin að kaupa mér glænýjan Toyota Aygo! Í fyrsta skiptið sem ég eignast svona nýjan bíl og í fyrsta skiptið sem ég keyri svona lítinn bíl! :) Hann er draumur í dós, léttur og lipur, eyðir engu og er bara helv..kúl fyrir smábíl! :)
Finnst ykkur það ekki?? :D

Það er meiri að segja Ipod tengi í honum! Verður maður þá ekki að kaupa sér Ipod líka til að vera maður með mönnum??! Ég kannski fjárfesti í einum svoleiðis líka þegar ég fer til Lúx, ef þeir eru eitthvað ódýrari þar. Sé til.... ;)
Rúmir tveir dagar eftir af vinnu, svo matarklúbbur á fimmtudaginn, skella sér á skíði til Akureyrar um helgina og svo í næstu viku flýg ég til Lúx. Jej! Nóg að gerast!